Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1494250565.81

    Tréstigar
    TRST3HH05
    2
    Tréstigar
    Tréstigar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum læra nemendur um smíði tréstiga innanhúss með áherslu á algengustu útfærslur þeirra, samsetningar, smíði og yfirborðsmeðferð. Nemendur læra að búa til skapalón í fullri stærð eftir teikningum og hvernig þau eru notuð til að smíða þrep, stigakjálka og stigahandrið með rimlum m.m. Nemendur fá þjálfun í að smíða tréstiga eða einstaka hluta þeirra í smækkaðri mynd og nota til þess hefðbundin áhöld og algengar trésmíðavélar. Kennslan er bæði bókleg og verkleg og er áfanginn ætlaður húsasmiðum.
    Nemendur hafi lokið við áfangana: Timburhús 1 Gólf– og veggjargrind og Timburhús 2 Þakvirki, útveggjaklæðningar (HÚSA3HU09 og HÚSA3ÞÚ09).
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umgengni og notkun trésmíðavéla fyrir smíði tréstiga innanhúss
    • vali efna til smíði tréstiga innanhúss
    • öryggisþáttum og viðhaldi trésmíðavéla
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði varðandi smíði stiga og handriða
    • límtré og notkun þess í þrep, uppstig og kjálka á tréstigum
    • smíðisfestingum til notkunar við samsetningu tréstiga
    • notkun prófíla úr málmi og plasti á tréstiga og handrið
    • áhöldum og tækjum til smíði tréstiga og handriða innanhúss
    • uppbyggingu og notkun hjólsaga og bandsaga í smíði tréstiga
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði áhalda og tækja
    • samsetningaraðferðum á tréstigum og handriðum innanhúss
    • samsetningum með bæði grötun og smíðisfestingum á tréstigum
    • uppsetningu og festingu handriða við stigakjálka og í vegg
    • formlímingu á bognum smíðishlutum í kjálka og handrið
    • yfirborðsmeðferð tréstiga og handriða innanhúss
    • aðferðum og efnum til að yfirborðsmeðhöndla tréstiga og handrið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota vélar og handverkfæri til smíði tréstiga og handriða
    • smíða og setja upp algengustu tegundir tréstiga
    • lesa og vinna með teikningar frá hönnuðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja heppilegt smíðaefni með tilliti til útfærslu og notkunar
    • velja og halda við áhöldum fyrir smíði tréstiga og handriða
    • velja trésmíðavélar og rafmagnshandverkfæri til stigasmíði
    • velja þvingur og pressur fyrir smíði tréstiga og handriða
    • beita öryggisreglum og öryggisbúnaði varðandi smíði stiga og handriða
    • velja slípi- og lökkunarkerfi fyrir mismunandi viðartegundir
    • gera viðeigandi öryggisráðstafanir við yfirborðsmeðferð á tréstigum og handriðum
    • smíða snúinn tréstiga með eða án handriðs og setja upp
    • smíða þrep og kjálka á snúinn tréstiga með viðeigandi samsetningum
    • búa til skapalón í fullri stærð eftir stigateikningum
    • smíða rimla, handrið og stigastólpa eftir því sem við á
    • setja saman tréstiga í samræmi við kröfur um málsetningu og útlit
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá