Nám á vinnustað er skilgreindur hluti af námi á málm- og véltæknibraut. Vinnustaðanámi er ætlað að þjálfa frekar hæfni nemenda á þeim sviðum sem nám þeirra á brautinni nær til. Á vinnustað fá þeir tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni við þær aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Nemendur kynnast af eigin raun þeirri menningu sem fyrir hendi er í íslenskum fyrirtækjum og eru beinir þátttakendur í henni. Gert er ráð fyrir að hverjum nema fylgi ferilbók þar sem grein er gerð fyrir þjálfun hans. Þeir verkþættir sem nemandi framkvæmir eru tíundaðir, mat lagt á framgöngu hans, verktækni, vinnuhraða og hæfni í viðkomandi iðngrein. Bera nemandi og atvinnurekandi eða fulltrúi hans sameiginlega ábyrgð á skráningu í ferilbók.
Þessi áfangi er sá fyrri af tveimur. Nemendur geta lokið honum samhliða námi við skóla.
Æskilegt er að nemandi hafi lokið sem nemur tveggja anna námi á málm- og véltæknibraut. Hafa ber samráð við kennslustjóra vegna forkrafna fyrir vinnsutaðanám.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim efnum sem unnið er með í málmiðnaði.
þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í málm- og véltæknigreinum.
meðferð spilliefna og úrgangs.
framleiðsluferli algengra smíðamálma, smíðahæfni, merkingum og efnisstöðlum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla málma, vélar og vélarhluta.
nota helstu handverkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein.
vinna við hand- og tölvustýrð tæki sem notuð eru á verkstæðum.
sjóða málma og velja suðutækni og -aðferð við hæfi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa teikningar, málsetja, draga upp útflatninga, gera efnislista, meta efnisþörf og kostnað.
vera ávallt meðvitaður um þær hættur sem fylgja störfum í málmiðnaði og þær öryggiskröfur sem gerðar eru á vinnusvæðum.
skipuleggja verkferla, setja upp verkþáttaröð og verkáætlun og vinna samkvæmt henni.
eiga í samskiptum við aðra iðnaðarmenn, hönnuði, tæknifólk og verkkaupa. Hann þekkir skipulag vinnustaðanáms og hlutverk þess í námi hans.
Námsmat er gert samkvæmt ákvæðum ferilbókar viðkomandi iðngreinar.