Í þessum áfanga er haldið áfram að fjalla um fallahugtakið og ýmsar gerðir falla og ferla. Fleygbogar verða krufðir til að finna rætur og útgildi. Keilusnið verður kynnt, sérstaklega í sambandi við fleygboga og jöfnu hrings. Við lausn allra verkefna verður reglulega stuðst við tölvuforrit.
STÆR2LF03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
grunnatriðum stærðfræðiforritsins Geogebru
fleygbogum
fallhugtakinu
margliðum; þáttum; núllstöðvum og útgildum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
leysa 1. og 2. stigs jöfnur
lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta.
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.
takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.