Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti orðaforða sinn tengdan nýsköpun og listum. Nemendur lesa greinar og bókmenntatexta auk þess sem þeir afla sér efnis á netinu. Þeir eru þjálfaðir í að tjá sig á ensku, á gagnrýninn hátt, bæði í ritun og tali og fá tækifæri til að velja sér viðfangsefni eftir áhuga og nálgast þau á skapandi hátt. Áhersla er lögð á samvinnu, sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði nemenda og skapandi nálgun verkefna í áfanganum.
ENSK3ME05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
enskum orðaforða og hugtökum sem tengjast nýsköpun og listum
orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
mismunandi málsniði enskrar tungu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til gagns greinar um efni tengd nýsköpun og listum
skilja vel sérhæfða texta á sviði nýsköpunar og lista
skilja talað mál sem fjallar um nýsköpun og listir, til dæmis fyrirlestra
taka virkan þátt í samræðum um nýsköpun og listir
tjá sig í ræðu og riti, bæði formlega og óformlega, um efni sem tengist nýsköpun og listum sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
virða skoðanir annarra og leysa verkefni í samvinnu við aðra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinka sér efni ritaðs texta sem tengist nýsköpun og listum og nýta á mismunandi hátt
skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna sem fjalla um nýsköpun og listir
leggja gagnrýnið mat á texta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
beita málinu til þess að geta tekið fullan þátt í rökræðum þar sem fjallað er um nýsköpun og listir
semja og flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, geta dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt með dæmum og brugðist við fyrirspurnum
nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun eða flutning verka sinna
nýta sér upplýsingatækni til fróðleiks og rannsókna
skrifa frumsaminn texta á ensku
nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli
sýna frumkvæði, ábyrgð og umburðarlyndi og beita gagnrýninni hugsun
virða skoðanir annarra og geta leyst verkefni í samvinnu við aðra
tileinka sér fjölbreytta hugsun við lausn mála, fræðilega, listræna og viðskiptalega