Nemendur öðlast frekari færni í tölvuteikningu með áherslu á gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Þeir fá þjálfun í fríhendisteikningu með áherslu á rissmyndir. Nemendur verða færir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.
IÐNT2VB04BV
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu rissmynda og gildi þess að vinna rissmyndir til skýringa á hugmyndum.
stöðlum sem gilda um teikningagerð, táknum og merkingum á teikningum og mælikvörðum sem algengir eru í smíða- og lagnateikningum.
strikagerðum og strikaþykktum á teikningum og merkingum þeirra.
reglum um málsetningar teikninga og notkun teiknileturs.
framsetningu sniða og varpana.
skástrikunum.
grundvallarreglum við gerð útflatningsteikninga og ísómetrískra teikninga og kerfismynda.
gerð samsettra teikninga og íhlutalista þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rissa upp einfaldar þrívíðar myndir af smíðahlutum.
skýra með teikningum hugmydir um útlit og tilgang einfaldra smíðahluta.
staðsetja teikningu, ákvarða hæfilegan mælikvarða og aðra uppsetningu.
setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo hægt sé að smíða hlutinn.
teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti samkvæmt upplýsingum framleiðenda.
teikna einstaka vélahluta og samsettar myndir samkvæmt fyrirmælum.
teikna hluti sjálfstætt samkvæmt skriflegum leiðbeiningum, velja íhluti og málsetja.
gera efnis- og tækjalista eftir teikningum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt.
beita þeim vinnuaðferðum sem krafist er við gerð vélateikninga og þjálfaðar hafa verið í áfanganum.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.