Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496844108.83

    Málmsuða 2 - TIG-MIG-MAG, plasmaskurður, grunnáfangi
    MLSU2VB03(BV)
    3
    Málmsuða
    Málmsuða - VB
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    BV
    Markmið þessa áfanga er að breikka þekkingargrunn nemenda og auka færni þeirra á sviði málmsuðu, einkum að því er varðar beitingu hlífðargass við suðu á mismunandi tegundum málma. Nemendur skulu öðlast þjálfun í suðu með hlífðargasi (argon, blandgas) á járni og öðrum málmum (ryðfríu stáli og áli).
    MLSU1VA03AV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • suðu með hlífðargasi.
    • argon- og blandgasi á stáli, ryðfríu stáli og áli með TIG, MIG og MAG suðutækjum.
    • MIG-MAG suðu á beinum fleti, lóðrétt-stígandi og lóðrétt-fallandi kverksuðu og uppundirsuðu.
    • TIG-suðu í kverk á tveimur ryðfríum plötum.
    • TIG-suðu á ryðfríum prófíl.
    • TIG-suðu á svörtum rörum.
    • skurði á ýmsum málmum með plasmaskurðarvélum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rafsjóða í ýmsum suðustellingum með MIG-MAG rafsuðutækjum.
    • rafsjóða ál, svart og ryðfrítt stál með TIG-suðu.
    • skera málma með plasmavélum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta við hvaða aðstæður henti að beita MIG-MAG eða TIG-suðu.
    • meta hvaða forsendur þurfi að vera til staðar til þess að MIG-MAG eða TIG suður henti við samtengingar.
    • meta hvaða tæki og búnaður þarf að vera til staðar við plasmaskurð og hvernær henti að beita plasmaskurði.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.