Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496935325.11

    Rafmagnsfræði 2
    RAMV2VA04(BV)
    5
    Rafmagnsfræði
    Rafmagnsfræði - VA
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    BV
    Í áfanganum er lögð áhersla á rafmagnsfræði riðstraums. Nemendur öðlast frekari þekkingu á segulmagni og rafsegulmagni og verða færir um að útskýra grundvallarvinnumáta rafvéla út frá því. Nemendur öðlast víðtæka þekkingu á rafsviði, spani og segulsviði. Einnig öðlast þeir þekkingu á undirstöðuatriðum riðstraumsrása og riðstraumsvéla og öðlast grunnþjálfun í lestri rafteikninga svo sem kassateikninga, einlínuteikninga og straumrásarteikninga.
    RAMV1VA04AV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einangrunarmælingum í rafkerfi.
    • segulmagni, rafsegulmagni og virkni þessara þátta í rafvélum.
    • undirstöðuatriðum riðstraums og riðstraumsrása.
    • afli og fasviki í einfasa og þriggja fasa riðstraumsrásum.
    • uppbyggingu og hlutverki segulrofa og grunntengingum hans.
    • uppbyggingu rafkerfis í smábátum og einstökum hlutum þess.
    • rafkerfum dísilvéla.
    • áhrifum fasviks á rafkerfi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útskýra einangrunarmælingar í rafkerfi.
    • útskýra segulmagn í rafvélum.
    • útskýra undirstöðuatriði í straumrásum.
    • finna fasvik í einfasa og þriggja fasa riðstraumsrásum með hjálp vektoramynda.
    • útskýra uppbyggingu rafkerfis í smábátum og einstaka hluta þess.
    • greina á milli seguslviðs, spans og rafsviðs.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sjá um rafbúnað í minni skipum.
    • þjónusta rafvélar minni skipa.
    • bregðast rétt við algengum bilunum í rafkerfum skips.
    • lesa rafmagnsteikningar og nýta í bilanaleit.
    • vinna kerfisbundið að því að finna bilanir í rafkerfum skipa og díselvéla.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.