Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496935387.73

    Rafmagnsfræði 3
    RAMV2VA04(CV)
    6
    Rafmagnsfræði
    Rafmagnsfræði - VA
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    CV
    Nemendur öðlast góða undirstöðuþekkingu á rafkerfum skipa með allt að 750 kW aðalvél og þjálfast í að nýta sér upplýsingar sem aflað er með lestri teikninga af rafkerfum slíkra skipa. Sérstök áhersla er lögð á riðstraumsvélar og tengingar riðstraumsrafala við net í gegnum varnarbúnað. Einnig tengingar riðstraumsmótora við net í gegnum algengan tengi- og ræsibúnað.
    RAMV2VA04BV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gerð, uppbyggingu og vinnumáta þriggja fasa riðstraumsrafala og mótora.
    • samfösun riðstraumsrafala.
    • tengingum og varnarbúnaði mótora.
    • ræsibúnaði rafmótora með Y/D ræsi og mjúkræsi.
    • hraðastjórnun riðstraumsmótors.
    • tengingu hraðastýringa við net.
    • mismunandi möguleikum til hraðastýringa þriggja fasa riðstraumsmótora.
    • uppbyggingu riðstraumstöflu í skipum.
    • búnaði og skilyrðum til samfösunar þriggja fasa rafala við raforkunet.
    • virkni og uppbyggingu einfasa riðstraumsmótora og notkunarsviði þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja rafmótor við net með algengum ræsibúnaði.
    • nota hefðbundinn samfösunarbúnað.
    • vinna með hraðastjórnunarbúnað riðstraumsmótora.
    • tengja hraðastýringar við net og mótor.
    • fasa saman rafala.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • starfa við rafkerfi skipa með allt að 750 kW aðalvél.
    • fasa þriggja fasa rafala við raforkunet.
    • lesa teikningar af rafkerfum skipa og geta nýtt upplýsingar úr þeim til að öðlast yfirsýn yfir rafkerfið.
    • vinna kerfisbundið að bilanaleit í rafkerfum skipa með allt að 750 kW aðalvél.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.