Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497008759.73

    Viðhaldsstjórnun, gæðakerfi og öryggisstjórnun
    VÖRS1VB04(AV)
    2
    Viðhalds- og öryggisfræði
    Viðhaldsstjórnun, gæðakerfi og öryggisstjórnun
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AV
    Nemendur öðlast þekkingu og skilning á gildi gæðakerfa og færni við að taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað, setja upp einfalt gæðakerfi á grunni viðhaldsstjórnunar, og setja upp verkþáttarit auk þess að setja upp skipulagt ferli sem ákvarðar tímalengd verkefnis (cpm). Nemendur tileinka sér kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa. Þeir kynnast grundvallaratriðum viðhaldsstjórnunar, þ.e. gæða- og viðhaldskerfa og öryggisstjórnunarkerfa. Ennfremur öðlast þeir haldgóða þekkingu í viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum og læra að setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og fyrirbyggjandi viðhalds.
    VÉLV3VA04AV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • verkþáttagreiningu og flokkunarkerfum.
    • viðhaldsverkfærum og dæmigerðum viðhaldskerfum, uppbyggingu og markmiðum þeirra.
    • hlutverki, ábyrgð, starfssviði og störfum vélstjóra á stærri skipum.
    • flokkunarkerfum, svo sem SFI-kerfinu.
    • tilgangi, notkun og uppbyggingu viðhaldsforrita fyrir vélbúnað.
    • helstu gerðum viðhaldskerfa, þ.e. bilanaviðhaldi, spáviðhaldi, tímastýrðu viðhaldi og viðhaldi byggðu á ástandsskoðun.
    • helstu tækjum sem notuð er við ástandsskoðun og til fyrirbyggjandi viðhalds, svo sem titringsmælum, þykktarmælum og útleiðslumælum.
    • uppbyggingu og markmiðum verkþáttarita, (cpm).
    • grundvallarhugtökum gæðastjórnunar og gæðavottunar, gæðakerfum og -handbókum.
    • öryggisstjórnunarkerfum, þ.m.t. ISM kóðanum og þeim kröfum sem hann gerir til vélstjóra.
    • helstu aðferðum við tæringarvarnir í skipum og á hverju þær aðferðir byggja.
    • helstu verkbókhaldskerfum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útskýra hvað átt er við með viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum.
    • setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og viðhalds.
    • setja upp verkþáttarit, reikna út heildarverktíma og finna krítísku línuna, (cpm).
    • útskýra kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað.
    • taka þátt í að setja upp og skipuleggja viðhalds- og öryggiskerfi um borð í skipum.
    • vinna samkvæmt verkferlum gæðastjórnunar.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.