Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497011911.83

    Viðhald véla - vélvirkjun
    VÉLV3VA04(AV)
    1
    Vélvirkjun
    Viðhald véla - vélvirkjun
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    AV
    Nemendur öðlast þekkingu á undirstöðuatriðum í viðhaldi og viðgerð á brunahreyflum skipa og algengum vél- og drifbúnaði sem þeim tengist. Nemendur taka í sundur, skoða og setja saman vélar og vélbúnað.
    VÉLS2VA04BV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu véla og samsetningu vélahluta.
    • aðferðum við að stilla saman vélar og vélbúnað.
    • hlutverki og uppbyggingu forþjöppu og gangráðs.
    • áhrifum hitabreytinga á þenslu vélahluta og hvernig brugðist er við þeim við hönnun vélbúnaðar.
    • aðferðum og efnum sem notuð eru til að steypa undir vélar og tæki.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta ástand vélbúnaðar samkvæmt þjónustu- og viðhaldslýsingum framleiðenda.
    • mæla og skoða búnað með tilliti til slits og leggja mat á niðurstöður.
    • taka upp strokk og bullu meðalhraðgengrar dísilvélar og meta slit.
    • sveigjumæla sveifarás og leggja mat á slit í sveifar- og höfuðlegum dísilvéla.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að upptektum á vélum og vélbúnaði.
    • mæla upp skipsskrúfu og leggja mat á niðurstöður.
    • leggja mat á dælur og dælikerfi sem þjónusta aflvélar með tilliti til viðhalds og upptektar.
    • sinna umhirðu tannhjóla og vökvagíra.
    • rétta af (lína saman) vél og drifbúnað.
    • meta ástand brunahreyfla út frá niðurstöðum athugana, svo sem þjöppumælingu og mælingu á smurolíuþrýstingi.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.