Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497260383.33

    Heimilisfræði heimilismatur sérnám
    HEFR1HM02
    11
    Heimilisfræði
    Heimilismatur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á einfalda eldamennsku og að efla verkkunnáttu í eldhúsi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnaðferðum sem notaðar eru við eldamennsku
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fara eftir uppskriftum
    • elda einfaldan heimilismat úr öllu algengu hráefni
    • nota helstu heimilistæki við eldamennsku
    • leggja á borð
    • vaska upp, þurrka og ganga frá eftir máltíð
    • viðhafa góða borðsiði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita helstu eldunaraðferðum eins og kostur er
    • nýta helstu miðla til að afla upplýsinga um eldamennsku og uppskriftir eins og kostur er
    • viðhafa vönduð vinnubrögð við eldhússtörf og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur
    • gera greinarmun á hollri og óhollri fæðu
    Símat.