Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497272205.63

    Íslenska lestur og orðaforði sérnám
    ÍSLE1LO04
    77
    íslenska
    Lestur og orðaforði
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    SN
    Í þessum áfanga lesa nemendur ýmiskonar bækur sem miðast við hæfni og áhuga hvers nemanda í lestri. Nemendur lesa skáldsögur, fréttaefni, menningartengt efni, ritdóma og myndabækur. Nemendur öðlast þjálfun í að lesa upphátt. Einnig er markmiðið með áfanganum að auka orðaforða nemenda.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lestri sér til ánægju og fræðslu
    • lestrarefni við hæfi
    • mikilvægi þess að geta einbeitt sér við lestur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig um lesinn texta
    • svara spurningum úr textanum
    • endursegja lesið efni
    • greina á milli aðalatriða og aukaatriða í texta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • byggja upp jákvætt viðhorf til lesturs
    • auka lesskilning sinn og orðaforða
    • fara á bókasafn og ná sér i bók sem hæfir lestrarkunnáttu
    • auka skilning sinn á ýmiskonar samfélagsmálum
    • lesa fjölbreytt efni sér til gagns og gamans
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.