Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497520389.54

    Yndislestur
    ÍSLE3YL03
    50
    íslenska
    Yndislestur
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í þessum valáfanga í íslensku er áhersla lögð á yndislestur með það fyrir augum að gefa nemendum tækifæri á að lesa fjölbreytt íslensk bókmenntaverk og að nemendur þrói bæði lestraráhuga og getu. Nemendur vinna sjálfstætt að verkefnum og þjálfast í að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
    • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
    • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
    • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
    • skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin.
    • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf