Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1498564610.22

    Umhverfisfræði sjávar - lífríki, mengun, dagbækur
    UMHV2SA04(AS)
    9
    umhverfisfræði
    Umhverfisfræði sjávar
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    AS
    Nám í þessum áfanga á að veita nemendum almenna fræðslu um utanaðkomandi ógnir við lífríki sjávar, þau áhrif sem útgerð skipa hefur eða getur haft á umhverfisþætti og þær reglur sem settar hafa verið í þeim tilgangi að draga úr þeim áhrifum. Nemendur kynnast þeim þáttum sem stuðla að eða geta valdið mengun eða breytingum á umhverfisþáttum og þeim afleiðingum sem þær breytingar kunna að hafa á lífríki sjávar. Almennt skal fjallað um mengun lofthjúps og áhrif hennar á veðurfar og hafstrauma en einnig áhrif mengunar á líkríki sjávar, svo sem á örverumyndanir í fjörðum og flóum sem geta valdið súrefnisþurrð í sjó. Jafnframt er fjallað um þær hættur sem lífríki sjávar stafar af mengun frá skipum og þau lög og reglur sem þar um gilda um mengunarvarnir ásamt því að fjallað er um einstök mengunaratvik, orsakir þeirra og viðbrögð. Model course 7.03, Competence 3.1.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu tegundum mengunar sjávar og uppruna hennar.
    • ákvæðum alþjóðasamþykktar til að koma í veg fyrir mengun sjávar, MARPOL.
    • ákvæðum íslenskra laga um varnir gegna mengun hafs og stranda.
    • reglum um mengun frá skipum og ráðstöfunum til að koma í veg fyrir hana.
    • takmörkunum á notkun tiltekinna eldsneytistegunda við siglingu skipa á tilteknum hafsvæðum.
    • reglum um tilkynningar til stjórnvalda, íslenskra sem erlendra, við mengunarslys eða óhapp og reglum og ráðstöfunum til að koma í veg fyrir mengun sjávar frá skipum eða farmi vegna eiturefna og efna sem geta verið hættuleg mönnum.
    • notkun ósoneyðandi efna, þeim reglum sem gilda um slík efni og hvernig skuli með þau fara.
    • notkun tinfrírra málningartegunda og áhrifum þeirra á lífríki sjávar.
    • alþjóðareglum um sjókjölfestuskipti í hafi, um gildissvið og um farmkvæmd þeirra ákvæða.
    • eftirliti með því að reglum sé framfylgt.
    • viðbragðsáætlunum við mengunaróhöppum, SOPEP, og efni þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja þeim reglum sem gilda um mengandi efni frá skipum.
    • gera viðeigandi ráðstafanir vegna förgunar efna og til að koma í veg fyrir mengun.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stjórna skipi og vinnslu með lágmarks mengun fyrir umhverfið.
    • halda olíudagbók.
    • halda sorpdagbók.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.