Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1503053069.82

    Franska C
    FRAN1FC05
    13
    franska
    hlustun og ritun. menning og staðhættir frönskumælandi landa, lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa þegar tileinkað sér. Haldið er áfram að þjálfa nemendur jöfnum höndum í öllum færniþáttum tungumálsins í samræmi við evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á að auka orðaforða og að vinna með flóknari formgerð frönskunnar. Nemendur kynnast einnig enn frekar menningu frönskumælandi landa. Áhersla er lögð á að nemendur geti notað frönskukunnáttu sína við margvíslegar aðstæður daglegs lífs og að þeir geti aflað sér upplýsinga á sjálfstæðan hátt í gegnum helstu gagnaveitur. Áfanginn er að litlu leyti á stigi A1 en að mestu leyti á stigi A2 samkvæmt evrópsku tungumálamöppunni.
    FRAN1FB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu franska málkerfisins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem franska er töluð sem móðurmál og þekki helstu samskiptavenjur
    • að greina og setja fram ýmsar almennar aðstæður í daglegu lífi, menningu og siðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni, fylgja almennum munnlegum fyrirmælum og greina aðalatriði þegar fjallað er um afmörkuð efni
    • lesa margskonar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
    • taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir
    • nota upplýsingatækni og önnur hjálpargögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla á nokkuð góðan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir
    • tjá sig á nokkuð vel við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
    • tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum
    • geta metið eigið vinnuframlag og stöðu
    • fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega
    • unnið skapandi verkefni á sviðum sem hann þekkir vel til
    • vinna að ýmsum verkefnum í samstarfi við samnemendur sína
    Nota skal fjölbreytt námsmat sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna. Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.