Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1503053527.85

    Spænska C
    SPÆN1SC05
    26
    spænska
    Spænska framhald
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Unnið er að færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Orðaforði eykst og ný málfræðiatriði eru æfð. Nemendur þurfa í auknum mæli að tjá sig munnlega og textar verða smám saman lengri og þyngri. Fléttað er inn í kennsluna upplýsingum um menningu og staðhætti spænskumælandi landa. Áhersla er lögð á frumkvæði nemenda og að þeir fylgist með framvindu náms síns og framförum í samræmi við evrópska tungumálarammann. Nemendur notast við les- og vinnubækur, gera hlustunar- og munnlegar æfingar. Nemendur vinna ýmis verkefni (munnleg eða skrifleg) með og án hjálpar upplýsingatækni. Verkefnin eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni og áhersla lögð á frumkvæði og sköpun. Áfanginn er á hæfniþrepi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
    SPÆNSB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • völdum grundvallarþáttum í uppbyggingu spænska málkerfisins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem spænska er töluð sem móðurmál og þekki helstu samskiptavenjur
    • ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni, fylgja almennum munnlegum fyrirmælum og greina helstu aðalatriði þegar fjallað er um afmörkuð efni
    • lesa margskonar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum
    • tjá sig munnlega eða skriflega á einfaldan hátt við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
    • tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum
    • fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til námsins og geta metið eigið vinnuframlag og annarra
    • nota upplýsingatækni og vefmiðla við námið
    • beita ímyndunaraflinu í skapandi verkefnavinnu
    • sýna ábyrgð á eigin námsframvindu
    Nota skal fjölbreytt námsmat sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna. Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.