Í áfanganum er mikil áhersla lögð á lestur og tjáningu í ræðu og riti. Fjallað verður um sögu íslensks máls, skyldleika við önnur tungumál og helstu hljóð- og málbreytingar íslenskunnar. Nemendur nota grunnhugtök bókmenntafræði til að greina texta frá ýmsum tímum og huga að stíl og stílbrigðum. Lesnar verða smásögur og bókmenntatextar frá ýmsum tímum og fjallað um þá. Nemendur eru þjálfaðir í setningafræði, greinarmerkjasetningu og stafsetningu eftir því sem þörf krefur. Kenndur er frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna. Þjálfun í tjáningu verður markviss og áhersla er lögð á framsögn við ýmiss konar tækifæri.
Grunnskólapróf
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu grunnhugtökum í ritgerðasmíð
málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
orðaforða sem nægir til að skilja íslenskt nútímamál í ræðu og riti
mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta ásamt grunnhugtökum í bókmenntafræði
upplýsingatækni sem nýtist honum í ritun og notkun ýmissa hjálpargagna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni
að skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli
að flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
að nota bókmenntahugtök á ýmsa texta
að nota upplýsingatækni markvisst við frágang ritsmíða
nýta hin ýmsu tölvuforrit og hjálpargögn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna tilbrigði í málnotkun
beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.