Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1504707281.66

    Inngangur að C++
    FORR3IC05
    14
    forritun
    C++, Inngangur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Farið er í rætur forritunar og forritunarmála. Farið verður yfir sögu forritunar og mikilvægi þess að geta haft góða stjórn á vélbúnaðinum. Einnig verður rætt um muninn á þýddum og túlkuðum málum, gagnagerðir og algrím
    FORR2FF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • muninum á C, C++ og þriðju kynslóðar forritunarmálum eins og Python
    • föllum
    • fylki, tengdir listar og reklasmíði
    • gagnsemi athugasemda í kóða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til föll
    • vinna með fylki og tengda lista
    • leyst verkefni með forritun
    • forritað einfaldar röðunaraðgerðir á fylkum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna sjálfstætt
    • greint forritskóða frá öðrum
    • útfæra einfaldan algrím frá grunni
    • skrifa skiljanlegan og vel uppsettan kóða
    • skrifa gagnlegar athugasemdir í kóða
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.