Í áfanganum kynnast nemendur virkni undirstöðueininga einkatölvu svo sem örgjörva, rásasetti, tengiraufum, minni, einstökum stýringum á móðurborði, hlutverki BIOS, diskastýringum, inn- og úttakstengjum. Fjallað er um tækniupplýsingar og val á tæknibúnaði í samræmi við þær. Áhersla er lögð á að nemendur fái innsýn í samvirkni helstu jaðartækja sem notuð eru með einkatölvum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
örgjörva
rásasettum
tengiraufum
minni
einstökum stýringum á móðurborði
hlutverki BIOS
diskastýringum
inn og úrtakstengi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa tölur á milli talnakerfa
setja upp einfaldar rökrásir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
uppfæra BIOS á einkaatölvu
skilja tengingu og uppbyggingu vélbúnaðar hluta í tölvu
skipuleggja vinnutíma og forgangsraða viðfangsefnum
vinna sjálfstætt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.