Fjallað er um gagnagrunna og hagnýta notkun þeirra í raunverulegum verkefnum. Fjallað er um hvernig gögn komast frá notanda til og frá gagnagrunni. Nemandi lærir að skrifa forrit sem hægt er að tengja við gagnagrunn og sem nær í, uppfærir og birtir gögn.
GAGN1GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun NoSQL í forritunarmáli
NoSQL
einföldum skipunum í forritunarmáli sem tengir okkur við gagnagrunn
SQL
notkun SQL í forritunarmáli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja við gagnagrunn með ákveðnu forritunarmáli
vinna með gagnagrunna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja inn og uppfæra gögn í gagnagrunni í gegnum vefsíðu/forrit
útbúa einfaldar vefsíður/forrit sem vinna með gagnagrunna
vinna sjálfstætt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá,