Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og íþróttaiðkunnar. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið er í uppbyggingu og samsetningu próteina, fitu og kolvetna. Fjallað eru um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Unnið er út frá matseðlum, þeir metnir, samdir og reiknað næringargildi út frá töflum. Fjallað eru áhrif matreiðsluaðferða á næringargildi. Skoðuð eru helstu fæðubótarefni sem eru á markaðnum og hugsanleg áhrif þeirra.
NÆRI1NN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðrar næringar fyrir íþróttamanninn
orku- og næringarefnum líkamans
áhrifum slæmra matarvenja á afkastagetu
tengslum á milli mataræðis og sjúkdóma
hvað er fæðubót og hver er þörfin á fæðubótarefnum
mikilvægi nægrar vatnsdrykkju
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja fæðu sem hentar fyrir keppni
velja fæðu sem eykur líkur á betri afköstum
velja góða og holla fæðu
lesa innihaldslýsingar á matvælum
sýna gagnrýna hugsun við val á fæðu og fæðubótarefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útbúa hollan og góðan matseðill fyrir sjálfan sig
velja sér næringarríkarfæðutegundir
auka andlega og líkamlega vellíðan með réttu fæðuvali
geta greint mun á góðu og slæmu mataræði
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.