Í áfanganum fer fram kynning á grunnatriðum fríhendis‐ og fjarvíddarteikninga. Áhersla er lögð á almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í gerð tvívíðra og þrívíðra fríhendisteikninga ásamt myndrænni framsetningu viðfangsefna. Þjálfað er mat á hlutföllum og gerð greinargóðra rissmynda með málsetningum og skuggum. Þjálfaður er formskilningur og greining einfaldra grunnforma, svo sem kassa‐ og kúluforma. Lögð er áhersla á teikningu mynda úr umhverfinu, bæði utan‐ og innanhúss og þannig kenndar grunnforsendur m.a. tveggja punkta fjarvíddarteikninga með skuggamyndunum og speglunum. Áhersla er lögð á að ná fullkomnu valdi á fjarvíddar og fríhendisteikningu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eðli, uppbyggingu og samsetningu mismunandi forma.
almennu fagbundnu teikninámi og öðru fagnámi starfsgreina með þjálfun í teikningalestri og skilningi.
mati á hlutföllum við gerð greinargóðra rissmynda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna einfaldar skissur út frá mismunandi fyrirmyndum.
miðla upplýsingum með fríhendis‐ og fjarvíddarteikningum.
teikna fríhendis- og fjarvíddarteikningar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna viðfangsefni myndrænt með fríhendisteikningu.
takast á við frekara nám tengt fríhendis‐ og fjarvíddarteikningum.
meta hvenær þörf er fyrir fjarvíddar- og fríhendisteikningar.
Byggist á verkefnavinnu, skyndiprófum eða sambærilegum æfingum, sem tengjast með símati og endurgjöf í heildarniðurstöðu námsmats.