Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: Wed, 20 Sep 2017 12:16:29 GMT

    Tölvustudd grunnteikning
    GRTE1TT04(AB)
    4
    grunnteikning
    Grunnteikning
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AB
    Í áfanganum er lögð áhersla á almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Nemendur læra grunnatriði fallmyndunar með áherslu á hornrétta fallmyndun, marghliða myndir þ.m.t. fram‐, hliðar‐ og ofanmyndir auk sneiðinga. Þá þjálfast þeir í meðferð og notkun textagerða og málsetninga, lestri teikninga og fá grunnþjálfun í gerð einfaldra teikninga. Nemendur þjálfast í grunnatriðum í útflatningsteikningum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • eðli fallmyndunar (hornréttrar fallmyndunar og skámyndunar).
    • undirstöðuatriðum í gerð einfaldra tvívíðra teikninga út frá þrívíðum fyrirmyndum.
    • upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna myndrænt með form.
    • skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera útflatninga af helstu grunnformum.
    • vinna og lesa teikningar í ýmsum fallmyndum.
    Símat sem byggir á verkefnum, skyndipróf og/eða lokapróf.