Í áfanganum eiga nemendur möguleika á að sýna getu sína og hæfni til að vinna heildstætt verkefni, sem tengist vinnumarkaðinum, sjálfstætt með ráðgjöf. Einnig þjálfast nemendur í gagnaöflun og því að kynna og útskýra vinnu sína fyrir öðrum.
Nemendur velja eitt eða fleiri fagsvið og æskilegt er að þeir leiti til fyrirtækis eða stofnunar. Umfang verkefnis ákvarðast í samráði við kennara. Æskilegt er að nemendur fái faglega aðstoð eða leiðsögn að einhverju leyti hjá viðkomandi fagaðila.
Nemendur vinna að mestu leyti sjálfstætt með ráðgjöf og eftirfylgni kennara og ráðgjafa frá viðkomandi aðila ef við á. Áhersla er lögð á að nemendur beiti þekkingu á hefðbundnum vinnuaðferðum og útfærslum innan fagsviða.
Gerður er þríhliða samningur milli nemenda, fagaðila og skóla áður en verkefnavinna hefst.
Áhersla er síðan lögð á að fagþekking nemenda endurspeglist í framsetningu teikninga, efnisvali, áferð, litavali og lýsingum svo að eitthvað sé nefnt, allt eftir því á hvaða fagsviði lokaverkefnið er.
Ekki er nauðsynlegt að verkefnið sé bundið við teiknivinnu eingöngu heldur geta nemendur aflað sér verkefnis, t.d. hjá verktökum, framleiðslufyrirtækjum og stofnunum þar sem unnið er eftir teikningum og hönnun annarra ef verkefnin eru þess eðlis að reyni á fagþekkingu þeirra. Ekki er ástæða til að útiloka neitt fyrirfram sem lokaverkefni og getur það þess vegna verið sýndarveruleiki þar sem teikningar eru settar inn í þrívíðar myndir og myndraðir sem mynda hreyfimyndir af tölvulíkani til að auðvelda hönnuðum, notendum og verkkaupum skilning og yfirsýn yfir hönnunina.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
framsetningu teikninga og tengdra gagna.
öflun gagna sem kröfur gera ráð fyrir á viðkomandi fagsviði.
að útfæra heildstætt verkefni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér upplýsinga í viðeigandi kröfum og reglugerðum.
vinna heildstætt verkefni að mestu sjálfstætt.
setja fram gögn á einfaldan, læsilegan og faglegan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
afla gagna til að kynna og útskýra vinnu sína.
þekkja og nota réttar vinnuaðferðir.
beita grafískri framsetningu teikninga og verkefna.
sýna skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Byggist á kynningu nemandans á lokaverkefninu, metin er af kennurum deildarinnar í sameiningu.