Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1505917086.61

    Íslenska - Fornám B hluti
    ÍSLE1FB05
    121
    íslenska
    Fornám B-hluti
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar. Nemendur fá þjálfun í fjölbreyttri ritun og tjáningu. Nemendur læra að meta góða málnotkun og öðlast trú á eigin málhæfni í ræðu og riti.
    ÍSLE1FA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lestrar
    • mismunandi aðferðum við lestur
    • mikilvægi þess að geta áttað sig á aðalatriðum texta
    • mikilvægi réttritunar
    • helstu hjálpargögnum við ritun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota lestrartæni við lestur mismunandi texta
    • taka aðalatriði úr texta og átta sig á meginefni hans
    • koma frá sér texta á rituðu máli
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ákvarða hvaða lestraraðferðurm skuli beitt við hinar ýmsu textagerðir
    • dýpka lesskilning sinn
    • styrkja eigin mál- og ritfærni
    • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
    • endursegja lengri sögu á sannfærandi hátt og lýsa flóknum aðstaæðu með skýrum og einföldum hætti án málalenginga
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.