Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1505995326.0

    Íþróttaakademía - Íþróttasálfræði
    ÍÞAK2ÍS04
    4
    Íþróttaakademía
    Íþróttasálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Áfanginn er verklegur og bóklegur og ætlaður nemendum sem stunda íþróttgrein/ar að jafnaði og þeim sem hafa áhuga á líkams- og heilsurækt. Markmið áfangans er að nemendur bæti árangur sinn sem íþróttafólk með því að nýta hugræna eiginleika sína við æfingar og keppni. Í áfangum er farið yfir helstu viðfangsefni íþróttsálfræðinnar og fjallað um þá þætti sem hafa áhrif á frammistöðu íþróttafólks s.s. hugræna þætti og hugsun, sjálfsmynd, áhugahvöt, streitu, kvíða og einbeitingu. Farið er yfir hvað þarft til að ná árangri í íþróttum og hvað einkennir afreksfólk.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugrænu þáttum sem hafa áhrif á frammistöðu íþróttafólks
    • mikilvægi jákvæðar sjálfsmyndar íþróttafólks
    • mikilvægi jákvæðar hvatningar í íþróttum
    • áhrifum streitu og kvíða á frammistöðu íþróttafólks
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta sér hugræna þjálfun
    • koma auga á og minnka streitu og kvíða meðal íþróttafólks
    • vinna markvisst með sjálfstraust og sjálfsmynd
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bæta sig í sinni íþrótt
    • nota skynmyndir í íþróttaþjálfun og keppni
    • setja sér árangursrík markmið
    • ýta undir innri áhugahvöt hjá sjálfum sér og öðrum
    • andlegur undirbúningur nýtist sem best