Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506503612.17

    Inngangur að upplýsingatækni
    UPPT1UU05
    17
    upplýsingatækni
    Forrit, samfélagsmiðlar, upplýsinganotkun., upplýsingaöflun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Sýni ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf. Markmið námsins er að stuðla að færni nemenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð áhersla á að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu og samþætti kunnáttu í upplýsingatækni við framsetningu efnis við aðrar námsgreinar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vefsíðugerð og vefhönnun
    • grunnatriðum í forritun
    • virkni þess hugbúnaðar sem fjallað er um
    • almennri notkun einkatölva
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðferð tölulegra gagna og framsetningu á þeim
    • öruggum netsamskiptum
    • grunnatriðum í forritun
    • sjálfstæðum vinnubrögðum
    • vinna í þeim hugbúnaði sem fjallað er um
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina valkosti í fjármálum og gera áætlanir fram í tímann
    • setja upp vefsíðu
    • stunda örugg netsamskipti og sýni þar gott siðferði
    • nýta þann hugbúnað sem fjallað er um í skóla og starfi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.