Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506511823.88

    Lýðheilsa - líkamsrækt, dans og næring
    LÝÐH1LN05
    28
    lýðheilsa
    Líkamsrækt og næring
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Lögð er áhersla á líkamsrækt í tækjasal og dans. Unnið verður með styrk, úthald og heilsueflingu. Markmiðið er að nemendur geti sjálfir stundað íþróttir og dans sér til ánægju og heilsubótar. Spjaldtölvur eða snjallsímar eru mikilvæg hjálpargögn. Einnig verður lögð áhersla á næringarfræði þar sem nemendur fá fræðslu um fjölbreytta og holla fæðu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gildi hreyfingar
    • uppbyggingu líkamsræktartíma
    • tækjum í tækjasal
    • gildi þess að dansa
    • mikilvægi hollrar fæðu fyrir heilsuna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota snjalltæki til að skipuleggja æfingatíma
    • gera fjölbreyttar æfingar
    • taka tillit til annarra
    • fylgja fyrirmælum og reglum
    • tjá sig í gegnum dans
    • greina vörur út frá hollustu
    • setja saman heilsusamlegan matseðil
    • útbúa heilsurétti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja leiðir til heilsueflingar
    • bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd eigin líkamsræktar
    • nýta dans til heilsueflingar
    • velja holla næringu
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá