Áfanginn inniheldur eingöngu verklegt nám. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist og læri
jóga, öndunaræfingar og slökun. Að hann sé gagnlegur og geti nýst nemendum við æfingar
síðar á lífsleiðinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi og áhrifum jógaiðkunar á líkamann og eigin líkamsvitund í gegnum stöður í Hatha jóga og mismunandi útfærslur á þeim.
Mikilvægi þess að ná góðri stjórn á andardrætti sínum í gegnum öndunaræfingar.
Hinum ýmsu slökunaraðferðum og áhrifum þeirra.
Hugleiðslu og mikilvægi þess að róa hugann og því hvað jógaiðkun er góð forvörn fyrir andlega og líkamlega heilsu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að fara í jógastöður og vinna með þær.
Halda jógastöðum og með aukinni líkamsvitund greina hvernig ákveðnar stöður stuðla að teygjum, slökun og staðbundnu álagi.
Losa um spennu og koma á jafnvægi í líkamanum.
Viðhalda eðlilegu orkuflæði með því að halda líkamanum slökum og teygjanlegum og ná valdi á huganum, róa hann og kyrra.
Framkvæma öndunaræfingar og finna áhrif þeirra á líkamann.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Framkvæma jógaæfingar á réttan hátt og ná sem bestum árangri hverju sinni.
Iðka reglulega öndunaræfingar sér til heilsubótar.
Þekkja líkama sinn og virða mörk hans líkamlega og andlega.
Slaka á líkamanum og róa hugann með mismunandi slökunaraðferðum.
Að leysa af hendi verkefni sem snúa að uppbyggingu og skipulagi eigin jógaiðkunar.
Mæting gildir 70 %.
Ástundun og kennaraeinkunn 30 %.
Við mat á ástundun og kennaraeinkunn er tekið tillit til framfara, framkomu, áhuga, vinnu og virkni í tímum.