Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506516318.56

    Fjallgöngur
    LÍKA2CG01
    1
    líkamsrækt
    Fjallgöngur.
    Samþykkt af skóla
    2
    1
    Í þessum áfanga kynnast nemendur því að fara út að ganga í náttúrunni, njóta hennar og sigrast á sjálfum sér. Lögð er áhersla á að byggja upp gönguþrek og úthald. Nemendur fræðast um hagnýta hluti sem tengjast gönguferðum og fjallgöngum og upplifi íslenska náttúru í góðum félagsskap. Nemendur fræðast um náttúruna og læri að bera virðingu fyrir henni. Lögð er áhersla á að fræða nemendur um mikilvægi þess að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi, útbúnað, fyrstu hjálp, mataræði og ferðaáætlun. Markmið námsins er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu og andlega og félagslega líðan. Áfanginn byggist á því að styrkja sjálfsmynd nemanda og auka vellíðan hans með fjallgöngum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Gildi útivistar og hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan með því að byggja markvisst upp gönguþrek og úthald.
    • Almennum búnaði til styttri ferða á fjöllum og í nærumhverfi.
    • Mikilvægi þess að taka tillit til veðurfars á gönguleiðum og ganga vel um náttúruna.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að undirbúa gönguferðir hvað varðar viðeigandi útbúnað og nesti.
    • Þekkja náttúru á völdum gönguleiðum, t.d. hvað varðar gróður, dýralíf og jarðsögu.
    • Að skipuleggja og geta tekið þátt í fjallgöngum og farið í styttri gönguferðir, einn eða með fjölskyldu og vinum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Að fara í styttri gönguferðir, einn eða með fjölskyldu og vinum.
    • Að meta og ákveða hvaða búnað þarf til ferðar og safna saman upplýsingum um væntanlega göngu.
    • Að geta nýtt þekkingu sína um heilsusamleg áhrif útivistar og fjallamennsku.
    • Að vera meðvitaður um umhverfi sitt og læra að njóta þess.
    Mæting gildir 70 %. Ástundun og kennaraeinkunn 30 %. Við mat á ástundun og kennaraeinkunn er tekið tillit til framfara, framkomu, áhuga, vinnu og virkni í tímum.