Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506517606.95

    líkamsrækt, hópíþróttir og útivist
    LÝÐH1LÚ05
    33
    lýðheilsa
    Líkamsrækt og útivist
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Lögð er áhersla á líkamsrækt í tækjasal og hópíþróttir. Unnið verður með styrk, úthald og heilsueflingu. Markmiðið er að nemendur geti sjálfir stundað íþróttir sér til ánægju og heilsubótar. Spjaldtölvur eða snjallsímar eru mikilvæg hjálpargögn. Nemendur skipuleggja sólarhringsferð þar sem farið verður í skipulagðar gönguferðir og lögð áhersla á samveru.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gildi hreyfingar
    • uppbyggingu líkamsræktartíma
    • tækjum í tækjasal
    • að útivist er leið til heilsueflingar
    • félagslegu gildi útivistar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota snjalltæki til að skipuleggja æfingatíma
    • gera fjölbreyttar æfingar
    • taka tillit til annarra
    • fylgja fyrirmælum og reglum
    • ganga lengri vegalengdir
    • nýta snjalltæki til að kortleggja útivist
    • vinna með öðrum og sýna samkennd
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja leiðir til heilsueflingar
    • bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd eigin líkamsræktar
    • gera sér grein fyrir að útivist er leið til heilsueflingar
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá