Í áfanganum er fjallað um tíðnirófið sem notað er til fjarskipta og skýrt hvernig radíómerki dreifist til og frá loftneti. Fjallað eru um fjarskiptakerfi heimila og minni fyrirtækja. Kynntar eru helstu gerðir loftneta og hvernig tíðni og næmni eru reiknuð. Nemendur læra um styrk- og tíðnimótun, sendingar á hliðrænum og stafrænum merkjum eftir boðskiptalögnum og í þráðlausum netkerfum. Kynntar eru helstu gerðir kapla og annarra hátíðnimerkjabera sem og efni sem notað er í loftnetskerfum og í þráðlausum netkerfum. Nemendur læra að reikna út einföld loftnetskerfi gagnvart styrk merkis og deyfingu í lofti, köplum og dósum. Notkun mælitækja er æfð og fræðilegur grunnur styrktur með mælingum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tíðnirófi fjarskipta
mismunandi mótunaraðferðum
helstu gerðum loftneta
útreikningum varðandi loftnetskerfi og þráðlaus fjarskipti
riðstraumsviðnámi og endaviðnámum
köplum til fjarskipta
mælitækjum til mælinga á loftnetskerfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp og tengja meðalflókið loftnetskerfi
beita helstu mælitækjum fyrir fjarskiptakerfi
ákvarða gerðir loftneta við mismunandi aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta sett upp einfalt loftnetskerfi með loftneti, magnara og tengidósum.
geta hannað, skipulagt og sett upp einfalt þráðlaust netkerfi
geta skeytt saman köplum
geta sett endatengi á flestar gerðir kapla
geta metið hvaða kaplar eiga við og hvaða loftnet eiga við í mismunandi aðstæðum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.