Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506525047.38

    Fjarskiptaækni
    FJSV3RE05(BV)
    2
    fjarskiptatækni
    kaplar, loftnet, tíðniróf
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    BV
    Í áfanganum er lögð áhersla á stafræna mótun og stafræna móttöku. Farið er í meðhöndlun stafræns merkis og mismunandi gerðir starfrænnar mótunar. Fjallað er um fjarskiptakerfi meðal stórra og stærri fyrirtækja. Farið er í loftnetskerfi ásamt meðal stórum og stærri þráðlausum netkerfum. Fjallað er um mismunandi tíðnisvið stafrænna fjarskipta og þráðlausra netkerfa. Lögð er áhersla á að nemendur læri að mæla og bilanagreina stafræn fjarskiptakerfi. Þjálfist í notkun tíðnirófsgreinis bæði fyrir hliðræn merki og stafræn merki. Læri að nota netmæla til að mæla og taka út víraðar netlagnir og skila af sér skýrslum um virkni þeirra. Nemendur læra að hanna meðal stór og stærri þráðlaus netkerfi út frá tíðnisviði, dreifingu og burðargetu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengum gerðum stafrænni mótun og afmótun
    • mælieiningum og mælitækjum í fjarskiptatækni
    • tíðnisviði, dreifingu og burðargetu þráðlausra netkerfa
    • hvernig hægt er að sía merki
    • notkun tíðnirófsgreinis við bilanagreiningu í þráðlausum netkerfum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp og tengja stafrænt loftnetskerfi
    • mæla merkjastyrk með loftnetsmælum
    • greina krossmótun og yfirmótun í loftnetskerfi
    • mæla, bilanagreina og taka út víruð netkerfi
    • mæla bilangreina og taka út þráðlaus netkerfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta sett upp loftnetskerfi og dreifikerfi fyrir stafræna og hliðræna mótun
    • geta mælt og bilanagreint loftnetskerfi
    • meta orsök krossmótunar og yfirmótunar
    • geta ákvarðað þörf og valið síur fyrir loftnetskerfi
    • geta mælt og ákvarðað þörf fyrir mögnun, millimögnun og síun í loftnetskerfi
    • geta mælt og bilanagreint víruð netkerfi
    • geta mælt og bilanagreint þráðlaus netkerfi
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.