Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506525709.86

    Rafeindavélfræði
    MEKV3RE05(BV)
    1
    Mekatronik
    Forritunarmál, flæðirit, tækniaðferðir, örtölvur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    BV
    Nemendur læra um virkni og notkun ýmissa skynjara og mótora sem tengjast tölvustýringum. Þeir læra að tengja saman ólíka íhluti, skynjara og útgangsrásir. Þeir læra um tengimáta og breytingu gagna milli mismunandi kerfa. Nemendur læra um aðferðir við umbreytingu stafrænna gagna yfir í analog og öfugt. Einnig hvernig nota má smáskjái sem notenda viðmót. Nemendur vinna flóknari verkefni en í undanfara og takist á við erfiðari forritun fyrir örtölvur með þriðju kynslóðar forritunarmáli. Beitt er mótaðri forritunaraðferð (structured programming) og lögð áhersla á að nota flæðirit eða aðrar teikniaðferðir við hönnun lausna.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni örgjörva eins og í PIC rásum
    • virkni ýmissa skynjara.
    • virkni ýmissa kraftrása.
    • samtengingu milli ólíkra kerfa.
    • virkni smáskjáa
    • servómótorum
    • jafnstraums- og steppermótorum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • forrita flóknari lausnir fyrir PIC rásir
    • stilla upp vélbúnaði s.s. mótorum og færiböndum
    • vinna með stepp- og jafnstraumsmótora
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hannað vélrænt kerfi með nokkrum skynjurum og nokkrum mótorum.
    • forritað kerfið og látið það virka.
    • geta hannað brú milli mismunandi kerfa.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.