Áfanginn fjallar um miðlægan tölvubúnað í netkerfum fyrirtækja. Nemendur læra um uppbyggingu og virkni miðlægs vélbúnaðar og netstýrikerfa. Þeir læra um algengustu stýrikerfi, diskakerfi, netþjóna, kælibúnað, varaafl, eftirlistbúnað og skýjalausnir af ýmsum gerðum. Farið er í öryggisafritun gagna og þau kerfi sem eru notuð til að tryggja örugga varðveislu afritanna. Nemendur kynnast stærri gagnageymslum ásamt því að heimsækja fyrirtæki sem hýsa gögn. Lögð er áhersla á net og miðlunarþjónustur meðal stórra og stærri fyrirtækja. Í lok þessa áfanga þekkir nemandinn uppbyggingu og virkni miðlægs búnaðar og hvernig farið er að því að tryggja að netþjónusturnar haldist í gangi þrátt fyrir bilanir, auk þess hvernig öryggi gagnanna og afrita sé best fyrir komið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
miðlægum tölvubúnaði fyrirtækja
netkerfum og uppbygging þeirra
algengustu diskakerfum tölvukerfa
eftirlistkerfum með miðlægum tölvubúnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp einfalt netstýrikerfi
setja upp öryggisafritun
setja upp hugbúnað til eftirlits með netþjónustum og tölvubúnaði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
áætla stærð netkerfis fyrir lítil fyrirtæki
hanna netstýrikerfi, server og net fyrri smærri fyrirtæki
hanna og ráðleggja afritun á mismunandi gögnum
hanna og ráðleggja um eftirlitskerfi með miðlægum tölvubúnaði
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.