Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506526686.18

    Nettækni og miðlun
    NETV3RE05(CV)
    2
    nettækni og miðlun
    bilanaleit, staðarnet, uppsetningar, víðnet
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    CV
    Áfanginn skiptist jafnt á milli umfjöllunar um stafræna mynd og hljóðútsetningar og mynd og hljóð upptöku þar sem lögð er áhersa á viðfangsefni tengd sköpun. Kennd er uppbygging á mismunandi mynddreifikerfa, í lofti, yfir internet og IPTV. Forsendur fyrir upplausn í dreifikerfi og hvernig upplausnarþörf er reiknuð og yfirfærð yfir í bandbreidd fyrir flutningsleiðir og flutningskerfi. Nemendur læri um þjöppun mynd- og hljóðmerkis og dreifingu þess með stafrænni mótun, hvort sem er um þráð eða í lofti. Nemendur læra um grunnþætti stafrænnar mynd- og hljóðupptöku. Læra á hugbúnað til að vinna hljóð og mynd á stafrænan hátt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stafrænum dreifikerfum sjónvarps og útvarps
    • kröfum um bandbreidd fyrir útsendingu á hljóði og mynd
    • helstu þjöppunarstöðlum fyrir hljóð og mynd
    • hljóðupptöku og hljóðupptökubúnaði, hugbúnaðir og vélbúnaði
    • myndupptöku og myndupptökubúnaði, hugbúnaðir og vélbúnaði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina þarfir og þekkja uppbygging á mismunandi mynd- og hljóðdreifikerfa
    • meta áhrif þjöppunar á merki og bandbreidd
    • nota hugbúnað og vélbúnað til að taka upp og vinna hljóð og mynd í stafrænu umhverfi
    • miðla hljóði og mynd yfir stafræna miðla og veitur.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • reikna upplausn og geymslustærðir fyrir stafrænar vinnslu og upptökur.
    • reikna þörf fyrir bandbreidd og þjöppunarstaðla í stafrænum útsendingum og upptökum á hljóði og mynd
    • taka upp, meðhöndla og miðla hljóði og mynd yfir stafræna miðla og veitur
    • nota fjölbreyttan búnað fyrir hljóð og myndupptöku
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.