Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506594161.86

    Íslenska - unglingabókmenntir
    ÍSLE1UB05
    90
    íslenska
    unglingabókmenntir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á unglingabókmenntir og unglingamenningu. Nemendur hlusta á lestur unglingabókar. Fjallað verður um unglingamenningu og ýmis málefni sem tengjast uppvexti og þroska einstaklinga. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Fjölbreyttar nálganir og sköpun verður virkjuð. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu unglingabókmennta
    • málefnum sem einkenna unglingsárin
    • hvað er á döfinni fyrir unglinga í nærumhverfi sínu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita þekkingu sinni til að ræða um unglingabókmenntir
    • beita þekkingu sinni til að ræða unglingsárin
    • nýta sér miðla til að fylgjast með hvað er á döfinni í nærumhverfi
    • nota talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota bækur sér til yndislestrar
    • taka þátt í málefnalegum umræðum í tengslum við uppvaxtarárin
    • taka þátt í atburðum í nærumhverfi sínu
    • nýta þá tækni sem auðveldar námið
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá