Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506599113.67

    Starfsnám á vinnustað 2
    STAR1SS05
    12
    Starfsumhverfi og vinnustaðakynning
    Starfsnám á vinnustað 2
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á atvinnuþátttöku nemenda ásamt fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Nemendur fara vikulega í starfsnám á sama vinnustað alla önnina.
    STAR1ST05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • atriðum sem ber að hafa í huga við starfsval
    • viðkomandi starfi
    • réttindum og skyldum launþega
    • mikilvægi þess að eiga jákvæð félagsleg samskipti
    • mikilvægi þess að taka þátt í atvinnulífi að skóla loknum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja sér starf við hæfi
    • fylgja skráðum og óskráðum reglum á vinnustað
    • vinna sjálfstætt
    • vera meðvitaður um réttindi og skyldur á vinnustað
    • eiga í jákvæðum samskiptum á vinnustað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í atvinnulífinu
    • hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur á vinnustað
    • eiga í jákvæðum samskiptum
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá