Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506616483.8

    Þjálfun og heilsa B
    ÍÞRÓ1XB03
    41
    íþróttir
    Líkamsrækt og íþróttir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Áfanginn getur verið verklegur og bóklegur eða eingöngu verklegur, sniðið eftir getu hvers og eins.
    Í bóklega hlutanum er farið yfir helstu flokka næringarefna og mikilvægi góðs mataræðis fyrir líkamann. Einnig er skoðað hvaða skaðlegu áhrif áfengi, tóbak og vímuefni hafa á líkamann.
    Fjallað er um líkamlega, andlega og sálræna þætti sem skipta máli fyrir heilsu okkar og í framhaldi skoðað hvaða þýðingu það hefur að búa við góða heilsu.
    Í verklega hlutanum er lögð áhersla á að nemendur finni sér hreyfingu og verkefni við hæfi.
    ÍÞRÓ1XA03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi hreyfingar fyrir góða heilsu
      - mikilvægi góðs mataræðis fyrir heilsuna og sem hluta af þjálfun
      - fæðuflokkunum og hvernig við getum nálgast helstu næringarefni
      - hvað felst í því að búa við góða félagslega og sálræna heilsu
      - hversu mikilvæg forvörn reglubundin hreyfing er fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera greinarmun á hollu og óhollu fæði
      - nýta sér mismunandi möguleika til hreyfingar og heilsueflingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nemandi geti nýtt sér þekkingu sína til að viðhalda og bæta líkamlega heilsu
    Nemendur skila verkefnum eftir getu og færni hvers og eins. Auk þess er mæting, virkni og frumkvæði í verklegum tímum metið.