Málskilningur, lestur, orðaforði og tjáning, ritun
Samþykkt af skóla
1
5
Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa þegar þeir koma í framhaldsskóla. Nemendur auki orðaforða sinn og málskilning og treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar, ritunar og tjáningar.
Meginhluti áfangans felst í heildstæðri vinnu með lesskilning, orðaforða, málskilning, tjáningu og ritun/stafsetningu. Lesskilningur og ritun er t.d. unninn út frá blaðagreinum, tímaritum og textum á netinu. Unnið er með ljóð með fjölbreyttum hætti, t.d. með texta við vinsæl dægurlög sem hægt er að nálgast á netinu. Nemendum gefst kostur á að lesa bók að eigin vali og gera grein fyrir henni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi lestrar og bókmennta - mikilvægi tjáningar og hlustunar - ritun og framsetningu texta - gildi lestrarkunnáttu - mismunandi lestraraðferðum - mikilvægi málskilnings og orðaforða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meðferð máls með auknum orðaforða og málskilningi - að lesa mismunandi texta sér til gagns - hlustun og úrvinnslu hennar - ritun mismunandi texta við sitt hæfi - að taka saman kynningu á afmörkuðu efni - tjáningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í ræðu og riti - lesa bókmenntaverk og aðra texta sér til gagns og gamans - semja stutta texta af ýmsu tagi, sögur og ljóð - taka þátt í umræðum og rökræðum - hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir
Í áfanganum er viðhaft fjölbreytt símat alla önnina, m.a. próf úr afmörkuðu efni (bókmenntir) og leiðsagnarmat ásamt því sem þátttaka í samræðum og virkni í tímum verða metin til einkunnar. Nemendur/kennari velja ákveðin verkefni sem gilda til lokaeinkunnar.