Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506681030.63

    Starfsnám á vinnustað B
    STAR1XB05
    35
    starfsnám
    vinnustaðanám.
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er verklegur og ætlaður nemendum á þriðja námsári. Námið fer fram á almennum vinnustöðum, vernduðum vinnustað eða í skóla. Við val á vinnustað er tekið mið af óskum nemenda að höfðu samráði við foreldra eða forráðamenn. Vinnan er skipulögð í samráði við vinnuveitendur og hefur umsjónarkennari eftirlit með vinnustaðanáminu. Lögð er áhersla á stundvísi, sjálfstæði, samviskusemi, vandvirkni, ábyrgð og góð samskipti við samstarfsmenn. Einnig er áhersla lögð á að nemendur þekki og fari eftir vinnureglum og helstu öryggisatriðum á vinnustað.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - hvað það er að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi
      - því sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
      - hvernig nýta beri lærða færni með því að ræða hana við aðra nemendur og bera saman við annað sem honum finnst skipta máli, t.d. áhugamál
      - hvernig hann miðlar þekkingu sinni með fjölbreyttum og skapandi hætti í samræðu við aðra nemendur með margskonar hætti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt og vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
      - beita skapandi hugsun í öllu starfi , vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
      - hafa aflað sér þjálfunar í þeim aðferðum og verklagi sem nám á vinnustað hans krefst
      - greina á milli mismunandi aðferða og milli mismunandi þátta í skipulagi verkferla
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
      - eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
      - hagnýta sér þá hæfni sem hann hefur aflað sér hvort heldur sem er í frekara námi eða í daglegu lífi
      - sýna fram á almenna siðvitund sína og umburðarlyndi
      - hafa skilning á eigin getu
      - miðla þekkingu sinni og leikni á hagnýtan máta og sýna þannig sköpunarmátt sinn, frumkvæði og hæfni til að tjá hugmyndir og skoðanir
      - meta eigið vinnuframlag
    Námsmat er tvíþætt. Annars vegar er 90% símat sem byggir á frammistöðu nemandans á starfsnámsstað. Tekið er mið af eftirfarandi þáttum: Samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði, vinnusemi og vandvirkni. Matið er í höndum umsjónarmanns nemandans á starfsnámsstaðnum.
    Hins vegar er 10% verkefni og/eða dagbók.