Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506953248.11

    Saga - 20. öldin til dagsins í dag
    SAGA1MA05
    19
    saga
    Saga 20. og 21. aldar
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á merka viðburði í sögu 20. aldar og til dagsins í dag. Einnig verður fjallað um helstu persónur sem hafa sett svip sinn á söguna og helstu tækniframfarir. Fjölbreyttar nálganir og sköpun verður virkjuð. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • merkum viðburðum í heimssögunni
    • þekktum persónum í sögunni
    • mikilvægi þess að þekkja til sögunnar
    • á merkum tækniframförum veraldar
    • tengslum fortíðar og nútíðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • kynna sér söguna
    • beita gagnrýnni hugsun
    • tjá skoðanir sínar
    • afla sér heimilda um ákveðna viðburði
    • miðla þekkingu sinni á skipulagðan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir helstu sögulegum atburðum og átökum
    • geta tekið þátt í umræðum um söguleg málefni
    • gera sér grein fyrir sögulegum skírskotunum í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum o.fl.
    • semja heimildaritgerð
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá