Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506955335.86

    Lýðheilsa - líkamsrækt, hópíþróttir og geðrækt
    LÝÐH1LG05
    34
    lýðheilsa
    Líkamsrækt og geðrækt
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Lögð er áhersla á líkamsrækt í tækjasal og hópíþróttir. Unnið verður með styrk, úthald og heilsueflingu. Markmiðið er að nemendur geti sjálfir stundað íþróttir sér til ánægju og heilsubótar. Spjaldtölvur eða snjallsímar eru mikilvæg hjálpargögn. Einnig verður lögð áhersla á geðrækt. Unnið verður með þá þætti sem tengjast geðheilsu og geðvernd.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gildi hreyfingar
    • uppbyggingu líkamsræktartíma
    • tækjum í tækjasal
    • gildi hópíþrótta
    • mikilvægi geðræktar
    • mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
    • ýmsum áhættuþáttum í lífi ungmenna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota snjalltæki til að skipuleggja æfingatíma
    • gera fjölbreyttar æfingar
    • taka tillit til annarra
    • fylgja fyrirmælum og reglum
    • þekkja þætti sem hafa áhrif á geðheilsu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja leiðir til heilsueflingar
    • bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd eigin líkamsræktar
    • gera sér grein fyrir eigin líðan
    • stuðla að góðri geðheilsu
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá