Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507044703.99

    Fatahönnun og saumur
    HÖNN1FH05
    17
    hönnun
    fatahönnun fyrir byrjendur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur vinna með grunnsnið og læra einfaldar sniðabreytingar. Nemendur laga snið að vexti, sauma einfaldar flíkur og máta. Kennd eru grunnformin á líkamanum og einnig flatar teikningar. Nemendur vinna nokkrar prufur í saumtækni. Vettvangsferðir og sýning á verkefnum nemenda.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - Uppbyggingu grunnsniða
      - Sniðhlutum, þráðrétta og mikilvægi merkinga
      - Notkun grunnsniða
      - Saumur á einföldum flíkum
      - Verklýsingum og flötum teikningum
      - Saumtækni
      - Útreikningum á efnismagni
      - Vönduðum vinnubrögðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - Vinna ýmsar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
      - Nota heiti sniðhluta og nota merkingar
      - Útfæra og sauma flíkur eftir málum
      - Fara eftir verklýsingum
      - Geta sett hugmyndir sínar á blað
      - Leggja snið á efni þannig að þráðlína sé rétt og efnið nýtt vel
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - Vinna sjálfstætt einfaldar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
      - Sauma einfaldar flíkur eftir grunnsniðum og eigin útfærslum
      - Vinna eftir verklýsingum
      - Ákveða efnismagn
      - Viðhafa vönduð vinnubrögð
    Í áfanganum er símat sem byggir á virkni og mætingu, prófum, verklýsingum, prufum og öðrum verkefnum.