Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507045459.68

    Sálfræði daglegs lífs
    SÁLF1SD05
    8
    sálfræði
    sálfræði daglegs lífs
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum læra nemendur sálfræðilegar aðferðir til að hafa áhrif á eigin líðan og andlegan styrk. Fjallað verður um hvernig líðan tengist hugsunum og hvernig hafa má áhrif á hugsanir sínar og þá um leið líðan.
    Auk þess læra nemendur leiðir til sjálfsstyrkingar, að efla einbeitingu, takast á við streitu, vinna gegn kvíða og höndla depurð. Einnig verður komið inn á samskipti og samskiptahæfni.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - því hvernig hugsanir hafa áhrif á líðan og hegðun
      - nokkrum aðferðum sálfræðinnar til að efla sjálfsmynd og bæta einbeitingu
      - mismunandi leiðum til samskipta s.s. til að leysa ágreining; gagnrýna á uppbyggilegan hátt og taka við gagnrýni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - greina mismunandi hugsanir og tilfinningar
      - bera saman mismunandi leiðir til að hafa áhrif á eigin líðan
      - meta áhrif samskipta á aðstæður og líðan
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - hafa áhrif á eigin líðan með sálfræðilegum aðferðum
      - leggja einfalt mat á eigin líðan út frá sálfræðilegum leiðum
      - beita einföldum leiðum til að bæta eigin sjálfsmynd, einbeitingu og almenna líðan
    Áfanginn er símatsáfangi sem byggir á verkefnaskilum og þátttöku í tímum.