Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507283536.16

    Mál og ritun
    ÍSLE1MR05
    117
    íslenska
    bókmenntir, málnotkun og ritun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Markmið áfangans er að nemendur þjálfist í lestri, lesskilningi og framsögn. Þeir lesa eina skáldsögu og vinna verkefni tengd henni. Einnig skrifa þeir ýmsa nytjatexta.
    Ritun: Nemendur vinna skrifleg verkefni og þjálfast í að semja innihaldsríkar málsgreinar. Einnig verður fjallað um byggingu efnisgreina og ýmiss konar nytjatexta.
    Lestur: Nemendur lesa eina skáldsögu. Málnotkun: Nemendur þjálfast í að beita tungumálinu með því að skrifa um hugðarefni sín, fjalla um bókmenntir og að mynda sér skoðun á þeim.
    Framsögn: Nemendur þjálfast í að koma fram fyrir hóp, flytja verkefni og tjá skoðanir sínar.
    C+ í grunnskólaeinkunn eða ÍSLE1LR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - grunnhugtökum í ritgerðasmíð
      helstu málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
      - orðaforða umfram það sem tíðkast í talmáli
      - mismunandi lestraraðferðum
      - nokkrum tegundum bókmennta og nytjatexta
      - helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - skrifa ýmsar tegundir nytjatexta í samfelldu máli þar sem framsetning er skýr og skipulögð
      - nota leiðréttingarforrit og önnur hjálpargögn til að lagfæra eigin texta
      - nýta algengustu hugtök í málfræði til að bæta eigin málfærni
      - beita mismunandi blæbrigðum og málsniði í tal- og ritmáli
      - taka saman og flytja stuttar endursagnir, lýsingar og kynningar á afmörkuðu efni
      - lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda
      - skilja algengt líkingamál og orðatiltæki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - semja stutta texta af ýmsu tagi með viðeigandi málfari
      - beita einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar
      - nýta algeng stílbrögð til að leggja áherslu á orð sín
      - halda uppi samræðum og rökstyðja eigin fullyrðingar, ákvarðanir eða skoðanir á málefnalegan hátt
      - túlka og meta atburðarás og persónur í bókmenntum eða annars konar textum
      - sýna þroskaða siðferðisvitund og víðsýni í málflutningi sínum, umfjöllunum og verkum
    Áfanginn er símatsáfangi með mörgum smærri verkefnum og prófum.