Í áfanganum er lögð áhersla á að byggja grunn í tungumálinu. Efni áfangans fjallar um daglegt líf og markmiðið er að styrkja alla færniþætti tungumálsins.
Tal: Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í að tala einfalda dönsku, tvö og tvö saman eða með kennara.
Hlustun: Nemendur vinna með hlustun sem tengist þeirra áhugasviði og daglegu lífi.
Ritun: Nemendur skrifa stutta texta eins og t.d. persónuleg bréf, skilaboð eða endursögn um kvikmynd.
Orðaforði: Nemendur vinna með orðaforða í tengslum við námsefnið.
Lestur: Nemendur lesa smásögur og ýmiss konar léttlestrartexta.
C+ / C / D í grunnskólaeinkunn.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum í ritun á dönsku
daglegu lífi ungs fólks í Danmörku
stuttum textum sem fjalla um kunnuglegt efni
orðaforða sem tengist áhugasviði og daglegu lífi
einföldu daglegu talmáli um kunnuglegt efni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota viðeigandi hjálpargögn og upplýsingatækni
svara spurningum skriflega og skrifa stutta texta í samfelldu máli um efni sem hann hefur áhuga á eða þekkir til
beita orðaforða á skýran og réttan hátt
svara spurningum munnlega og taka þátt í einföldum samræðum um kunnuglegt efni
skilja talað mál þegar talað er skýrt um kunnuglegt efni
lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði og beita viðeigandi lestraraðferðum hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fylgjast með frásögnum og skilja aðalatriði ef efnið er kunnuglegt
tileinka sér aðalatriðin í stuttum greinum og draga ályktanir af því sem hann les
tjá skoðun sína
lesa einfaldan skáldskap sér til ánægju
miðla eigin skoðunum og tilfinningum
skrifa stutta samantekt, t.d. um kvikmynd
Símat ásamt lokaprófi sem þarf að standast. Símat byggir á fjölbreyttu námsmati í tengslum við verkefnavinnu og þemavinnu, einnig smærri prófum og könnunum. Matið tekur til allra færniþátta, þ.e. hlustunar, tals, ritunar og lesturs.