Unnið er með algebru og föll. Einnig er unnið með hnitakerfið, jöfnu beinnar línu, veldi og rætur. Nemendur kynnast fallahugtakinu. Enn fremur er unnið með mengi og mengjarithátt, einnig ójöfnur og ójöfnuhneppi, rótarjöfnur, algildisjöfnur, annars stigs jöfnur og dulbúnar annars stigs jöfnur. Kynntar eru margliður af hærra stigi og margliðudeiling.
STÆR2AR05 eða STÆR2RU05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
deilanleika út frá frumþáttun og tilvist rauntalna
algengum reiknireglum og algebrubrotum
fyrsta og annars stigs jöfnum og ójöfnum
hnitareikningi m.a. jöfnu beinnar línu og fleygboga
mengjum og mengjarithætti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
táknmál – stærðfræðilega framsetningu viðkomandi námsefnis og túlkun táknmáls á mæltu máli
frumþáttun og deilanleika
rauntölur, algengar reiknireglur og beitingu veldareglna
meðferð algebrubrota og lausn annars stigs jafna
hnitakerfið og tengsl falla við gröf
stærðfræðiforrit og vísindalega vasareikna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðlað henni í mæltu og rituðu máli og skráð lausnir skipulega
beitt skipulegum aðferðum og skapandi hugsun við lausnir
klætt verkefni í stærðfræðilegan búning, leyst þau og túlkað lausnirnar
hagnýtt stærðfræðilega þekkingu
Námsmat byggist á lotuprófum, verkefnum og lokaprófi.