Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507624062.57

    Lestur og ritun
    ÍSLE1LR05
    112
    íslenska
    lestur og ritun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum verður lögð áhersla á grunnatriði í málfræði og stafsetningu. Nemendur eru einnig þjálfaðir í ritun og að koma efni skipulega til skila. Auk þess verður fjallað um málnotkun og helstu hugtök beygingarfræðinnar rifjuð upp. Fjallað verður um nokkur bókmenntahugtök og nemendur læra að beita þeim við lestur. Áhersla verður lögð á tjáningu og að koma efni skýrt og vel frá sér í ræðu og riti.
    C í grunnskólaeinkunn.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stafsetningarreglum sem nýtast í námi
    • fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær bæði í rituðu og töluðu máli
    • helstu málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
    • orðaforða umfram það sem tíðkast í talmáli
    • helstu atriðum sem varða framsögn og því að vera virkur í umræðum
    • grunnhugtökum í málfræði
    • grunnhugtökum í bókmenntafræði til að greina texta
    • mismunandi tegundum ritsmíða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stafsetja rétt
    • geta greint orð í orðflokka
    • beita málfræðihugtökum og greina í orðflokka
    • nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit sinni og miðlun þekkingar
    • notast við fjölbreyttar námsaðferðir
    • nýta sér mismunandi hjálpargögn, s.s. handbóka, villuleitarforrita og orðabóka
    • skrifa mismunandi texta
    • að lesa sér til gagns og gaman texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda
    • nota orðabækur
    • nota leiðréttingarforrit og önnur hjálpargögn við ritsmíðar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa villulausan texta með aðstoð hjálpargagna
    • tjá sig á einfaldan og skýran og skapandi hátt
    • taka þátt í samræðum, fært rök fyrir máli sínu og virt skoðanir annarra
    • skrifa mismunandi texta
    • beita málfræðihugtökum á réttan hátt
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
    • halda uppi samræðum og rökstyðja eigin fullyrðingar, ákvarðanir eða skoðanir á málefnalegan hátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá út frá leiðsagnarnámi.