Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507625352.88

    Algebra og jöfnur
    STÆR1AJ05
    92
    stærðfræði
    algebra, jöfnur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er fyrir nemendur á náttúrufræðibraut og viðskipta-og hagfræðibraut. Í áfanganum er lögð áhersla á vinnubrögð í stærðfræði. Farið verður í algebru- og talnareikning, hlutfalla-og prósentureikningur og rúmfræði í fleti.
    C+ / C í grunnskólaeinkunn eða STÆR1AA05 og STÆR1BB05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnþáttum stærðfræðinnar
    • almennum talnareikningi með heilum tölum, ræðum og óræðum
    • hlutfalla- og prósentureikningi
    • velda- og rótarreikningi
    • rúmfræði í fleti
    • margliðum og hornaföllum
    • tengslum jafna við föll
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota táknmál stærðfræðinnar
    • vinna með tölur, jöfnur og algebru
    • vinna með prósentu-og hlutfallareikning
    • gera munnlega eða skriflega grein fyrir niðurstöðum sínum og aðferðum
    • nota reiknivél og önnur hjálpartæki við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
    • beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geta útskýrt aðferðir sínar
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
    • átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
    • beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
    • geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
    • geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum.